Lífið

  • person s hands
    Lífið,  Nýtt

    Viskukorn

    Lífið er fult af lærdóm og lærdómurinn mikilvægt skref í átt að þroska. Fólkið í kringum okkur og venjur okkar hafa mikil áhrif á hvernig við þroskumst í lífinu. Við ein stjórnum okkar eigin venjum, þær geta byggt okkur upp eða brotið okkur niður. Veljum okkur venjur í þá átt sem við viljum þroskast. Þetta getum við gert t.d. með því að fóðra huga okkar af góðu efni. Hugur okkar endurspeglar það sem við setjum ofan í hann, lesum vandað efni umfram klikkbeitur samfélagsmiðlana. Vandaðu valið þegar kemur að því að velja fólkið í kringum þig. Þinn innsti hringur á að vera drauma liðið þitt. Ef þú velur í kringum…

  • Lífið,  Nýtt

    Hvernig er samskiptafærni þín?

    Samtalið er kjarninn í samskiptafærni hvers og eins. Í gegnum samtalið fara bæði skilaboðin sem við sendum frá okkur og þau sem við móttökum. Í þessum Ted fyrirlestri fer Celeste Headlee yfir 10 atriði sem geta aukið samskiptafærni okkar. Celeste hefur starfað sem þáttastjórnandi í útvarpi í áratugi. Til þess að skapa gott samtal notar hún hráefnin heiðarleika, samkvæmni, skýrleika og síðast en ekki síst hlustun. Já hlustun er mikilvæg í samskiptafærninni. Gefðu sjálfri/sjálfum þér 12 mínútur til að hlusta á Celeste, það er þess virði.   „Go out, talk to people, listen to people and most importantly be prepared to be amazed.“ – Celeste Headlee –