Matur og næring,  Nýtt

Beikon og brokkolí salat

Fljótlegt og gott!

Hráefni

8-10 beikon sneiðar

2-3 brokkolí hnausar

1 1/2 bolli rifinn cheddar ostur

1/2 brytjaður rauðlaukur

1/2 bolli rauðvíns edik

2 tsk. svartur pipar (malaður)

1 tsk. salt

2/3 bolli sýrður rjómi

1 tsk. ferskur sítrónusafi

 

Leiðbeiningar

Salat: Steikið beikonið yfir meðalhita þar til sneiðarnar verða stökkar og gómsætar. Látið fituna leka vel af beikoninu og brjótið sneiðarnar niður í smærri bita. Hellið saman í skál, brokkolí, ostinn, laukinn og beikonið.

Salatsósa: Þeytið saman rauðvíns edik, pipar, salt, sýrðan rjóma og sítrónusafa. Hellið því næst sósunni yfir salatið og hrærið saman. Geymið salatið í kæli þar til það verður borið fram. Best er að geyma salatið í skál með loki eða plastfilmu.

 

Njótið!